Home Fréttir Í fréttum 06.02.2025 Hásteinsvöllur – Gervigras

06.02.2025 Hásteinsvöllur – Gervigras

13
0
Hásteinsvöllur. Ljósmynd: fotbolti.net/Hafliði Breiðfjörð

Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í verkið Hásteinsvöllur – Gervigras.

<>

Útboðsverkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi gervigrass ásamt fjaðurlagi (in-situ) vegna endurgerðar aðalvallar Hásteinsvallar í Vestmannaeyjum. Gervigrasið skal vera af bestu fáanlegum gæðum og uppfylla FIFA Quality staðal Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

Helstu þættir verksins eru::

  • Gervigrasyfirborð alls um 9.360m2
  • Keppnisvöllur 68x105m
  • Heildarstærð 78x120m

Skiladagar verksins eru eftirfarandi:

· Verklok keppnisvallar – 1. maí 2025

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með þriðjudeginum 21. janúar 2025 kl.14:00.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en fimmtudaginn 6. febrúar kl. 14:00