Home Fréttir Í fréttum Hlédrægur milljarðamæringur kaupir dýrustu íbúð Dan­merkur

Hlédrægur milljarðamæringur kaupir dýrustu íbúð Dan­merkur

74
0
Papirøen í Kaupmannahöfn.

Clausen er ellefti ríkasti Daninn en hlutur hans í 3Shape, sem hann stofnaði sem nemi, er metinn á 314 milljarða.

<>

Tais Clausen, einn stofn­enda 3Shape, fyrir­tækis sem sér­hæfir sig í þrívíddar­skönnun fyrir tann­lækna­iðnaðinn, hefur keypt dýrustu íbúð Dan­merkur.
Þetta kemur fram í frétt Børsen.

Verð íbúðarinnar, sem er stað­sett á Papirøen í Kaup­manna­höfn, er 70,9 milljónir danskra króna (um 1,4 milljarðar ís­lenskra króna).

Íbúðin er 378 fer­metrar, sem þýðir að fer­metra­verðið er 187.583 danskar krónur eða um 3,7 milljónir ís­lenskra króna.

Papirøen er nýtt íbúðar­hverfi í Kaup­manna­höfn en borgar­hlutinn er hannaður af dönsku hönnunar­stofunni Cobe.

Á eyjunni er að finna 151 íbúð sem eru stað­settar við höfnina með útsýni yfir meðal annars Amalien­borg, Ka­stellet og Óperu­húsið.

Íbúar á eyjunni hafa einstakt aðgengi að sjónum.

Stofn­endur 3Shape meðal ríkustu Dana
Tais Clausen og Nikola­j Deichmann stofnuðu 3Shape árið 2000. Á þeim tíma var Clausen að þróa frum­gerð af 3D-skanna við Tækni­háskóla Dan­merkur, á meðan Deichmann, nemi við Við­skipta­háskólann í Kaup­manna­höfn, var að leita að verk­efni fyrir keppni.

3Shape hefur vaxið gríðar­lega síðan þá og var með 996 milljóna danskra króna hagnað árið 2023, sem er 14% aukning frá fyrra ári.

EBITDA-fyrir­tækisins var 1,3 milljarðar danskra króna.

Íbúar get geymt báta sína við eyjuna.

Clausen og Deichmann eru nú meðal ríkustu ein­stak­linga Dan­merkur en Clausen á 40% hlut í fyrir­tækinu og er metinn á 16,1 milljarð danskra króna, eða um 314 milljarða íslenskra króna á meðan Deichmann á 36% og er metinn á 14,1 milljarð danskra króna.

Sam­kvæmt Børsen hafa bæði Clausen og Deichmann kosið að halda sig utan sviðsljóssins og eru þeir þekktir fyrir að veita sjaldan viðtöl við fjölmiðla.

Heimild: Vb.is