Byggingarfyrirtækið E. Sigurðsson ehf. hefur skipað nýja stjórnendur í lykilstöður innan fyrirtækisins.
Byggingarfyrirtækið E. Sigurðsson ehf. hefur skipað nýja stjórnendur í lykilstöður innan fyrirtækisins. Ráðningarnar eru liður í skipulagsbreytingum hjá fyrirtækinu sem tóku gildi í desember.
Guðmundur Magnús Jóhannsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra af Eyjólfi Fannari Eyjólfssyni sem hefur gegnt stöðunni til þessa, en er að snúa sér að öðrum verkefnum innan fyrirtækisins.
Hann hefur starfað sem rekstrarstjóri og verkefnastjóri hjá fyrirtækinu síðastliðin fimm ár og hefur mikla reynslu af stjórnun og verkefnastýringu í byggingariðnaði. Guðmundur Magnús er menntaður húsasmiður.
„Það er mér mikill heiður að taka við starfi framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu og á sama tíma lít ég á þetta tækifæri sem spennandi áskorun. Fyrirtækið stendur á mikilvægum tímamótum og ég er staðráðinn í því að styrkja starfsemina, rækta gildin sem fyrirtækið byggir á og leggja áherslu á gæði, fagmennsku og árangursrík samskipti,“ segir Guðmundur.
Stefán Haukur Arnarsson hefur jafnframt tekið við starfi fjármálastjóra E. Sigurðsson ehf. en hann hefur starfað sem verkefnastjóri ásamt því að sinna ýmsum störfum fyrir fyrirtækið síðastliðin átta ár.
Hann hefur einnig veitt ráðgjöf fyrir nýsköpunarfyrirtæki og býr yfir fjölbreyttri reynslu úr atvinnulífinu og hefur sýnt framúrskarandi hæfni í stjórnun fjármála og rekstrarverkefna. Stefán Haukur er viðskiptafræðingur að mennt.
Heimild: Vb.is