Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í:
Skiljuvatnslögn á Skarðmýrarfjalli
Verkið felur í sér uppsetningu á forskilju á safnæðastofni 8 á Skarðsmýrarfjalli og tengingu við tvær borholur HE-37 og HE-39. Verkið er hluti af gufuveitu Hellisheiðarvirkjunar. Í stórum dráttum felst verkið í forsmíði og tengingu forskiljunnar inn á safnæðastofn 8 og lagningu skiljuvatnslagnar frá forskiljunni að umræddum borholum, samtals um 1450m leið.
Helstu magntölur:
Gröftur 12.000 m3
Fyllingar 12.000 m3
Stálsmíði, svart stál 10,5 tonn
Pípulagnir ofanjarðir, DN500 1.450 m
Verklok heildarverks eru 30.06.2017
Verkinu er nánar lýst í útboðsgögnum „ONVK-2016-11 Skiljuvatnslögn á Skarðsmýrarfjalli“
Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 9. júní 2016 kl. 14:00.