Home Fréttir Í fréttum Sextán íbúðir auk verslunar og þjónustu á Hafnargötu 44 og 46

Sextán íbúðir auk verslunar og þjónustu á Hafnargötu 44 og 46

76
0
Hér er mynd úr tillögunni fyrir Hafnargötu 44 og 46.

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Hafnargötu 44 og 46 í Keflavík hefur verið lögð fyrir umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar. Það er Tækniþjónusta SÁ leggur fram tillöguna fyrir hönd Faxafells ehf.

<>

Um er að ræða lóð á horni Hafnargötu og Skólavegar. Á lóðinni verði verslun og þjónusta á hluta jarðhæðar en sextán íbúðir á efri hæðum. Hámarkshæð byggingar verði fjórar hæðir.

Umhverfis- og skipulagsráð veitti á síðasta fundi sínum heimild til að auglýsa deiliskipulagstillöguna.

Heimild: Vf.is