Útboðsverkið felst í byggingu á nýju Vallarhúsi við hlið áhorfendastúku á Hásteinsvelli. Vallarhúsið er 100 m2. tæknirými fyrir Hásteinsvöll og geymslurými fyrir tæki og búnað í tengslum við uppbyggingu gerfigrasvallar.
Útboðsgögn er hægt að panta hjá TPZ teiknistofu Kirkjuvegi 23 Vestmannaeyjum, netfang tpz@teiknistofa.is, frá og með föstudeginum 20. desember 2024 og verða gögn send á tölvutæku formi til tilboðsgjafa.
Tilboðum skal skila til Umhverfis-og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, Ráðhúsi Vestmannaeyjabæjar fyrir kl 13:45, mánudaginn 13. janúar 2025 og verða opnuð þar kl 14:00 sama dag í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Heimild: Vestmannaeyjabær