Home Fréttir Í fréttum Sveitarfélagið Árborg selur byggingarrétt á Glaðheimareit

Sveitarfélagið Árborg selur byggingarrétt á Glaðheimareit

99
0
Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar og Pálmi Pálsson fulltrúi Fagradals ehf.

Sveitarfélagið Árborg hefur, eftir útboð, gert samning við Fagradal ehf. um kaup á byggingarrétti fyrir íbúðarhúsnæði á lóðinni Tryggvagötu 36, svokölluðum „Glaðaheimareit.“

<>

Um er að ræða 3.084m2 lóð miðsvæðis á Selfossi og er gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði á lóðinni.

Fimm tilboð bárust í lóðina og bauð Fagridalur ehf. hæsta verð, 151.250.000 kr. Framkvæmdaaðili mun nú gera tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina og leggja fyrir skipulagsnefnd Árborgar áður en framkvæmdir geta hafist. Gera má ráð fyrir að skipulagsferlið taki nokkra mánuði og framkvæmdir geti hafist á lóðinni síðla sumars eða haustið 2025.

„Það er ánægjulegt að trú framkvæmdaaðila á uppbyggingu í Árborg sé eins mikil og raun ber vitni. Verður síðan spennandi að sjá hugmyndir framkvæmdaaðila fyrir lóðina sem er einstaklega vel staðsett á Selfossi,“ sagði Bragi Bjarnason bæjarstjóri af þessu tilefni.

Það voru Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar og Pálmi Pálsson fulltrúi Fagradals ehf. sem skrifuðu undir kaupsamninginn.

Heimild: Dfs.is