Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í vallarlýsingu á nýjan gervigrasvöll og æfingsvæði á íþróttasvæði Þórs á Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 11. desember 2024.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 8. janúar 2025 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.