Home Fréttir Í fréttum Flug­stöð og flughlað vígð á af­mæli Akureyrarflugvallar

Flug­stöð og flughlað vígð á af­mæli Akureyrarflugvallar

29
0
Hjördís Þórhallsdóttir, flugvallarstjóri á Akureyri, tekur við aðgangskortinu að nýju flugstöðinni frá Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra innanlandsflugvalla Isavia. Isavia

Ný flugstöð og nýtt flughlað voru vígð við hátíðlega athöfn á Akureyrarflugvelli síðdegis í gær. Samtímis var fagnað sjötíu ára afmæli flugvallarins.

<>

Flugvöllurinn var tekinn í notkun á þessum sama degi, 5. desember árið 1954, þá með 1.000 metra langri flugbraut. Við vígsluathöfnina þá lýstu ráðamenn flugmála því yfir að stefnt væri að 2.000 metra braut því flugvöllurinn ætti í framtíðinni einnig að þjóna sem millilandaflugvöllur.

Segja má að núna sé hann loksins orðinn alvöru millilandaflugvöllur, með sérstakri alþjóðaflugstöð aðskildri frá innanlandshlutanum. Búið er að fjölga flugstæðum fyrir stórar þotur og komin ný fríhöfn.

Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt úr nýju millilandaflugstöðinni á Akureyri. Í viðtali í beinni útsendingu sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, þetta gleðileg tímamót. Verið væri að opna dyr inn í framtíðina.

Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra flugmála, ávarpar gesti.
Egill Aðalsteinsson

Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að flugstöðin hafi verið endurbætt í þremur áföngum. Í þeim fyrsta hafi nýrri viðbyggingu upp á 1.100 fermetra verið bætt við. Þar sé aðstaða fyrir lögreglu, toll, fríhafnarverslun og veitingastað.

Í öðrum áfanga verksins hafi núverandi komusvæði flugstöðvarinnar verið endurbyggt en þar sé núna nýtt innritunarsvæði.

Í þriðja áfanga hafi núverandi innritunarsvæði og skrifstofuhluti flugstöðvarbyggingarinnar verið endurbyggð.

Athöfnin fór fram í nýjum farþegasal alþjóðaflugsins.
Egill Aðalsteinsson

Nýja flughlaðið er 33 þúsund fermetrar að stærð og með skilgreind tvö þotusvæði. Allt í allt er hægt að taka á móti tólf til fjórtán flugvélum á Akureyrarflugvelli í stað fjögurra til fimm véla, segir Isavia.

Sigrún segir að ný flugstöð og nýtt flughlað muni gagnast mikið í þeirri sterku þróun sem orðið hafi í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll.

„Þessi bygging mun geta annað hálfri milljón farþega en farþegar um Akureyrarflugvöll eru um 200 þúsund árlega. Þar af eru millilandafarþegar um 16% og hér er vöxtur í okkar rekstri. Hér eru tækifærin í auknu flugi og hér er sóknarhugurinn.“

Fjölmenni var við athöfnina.
Isavia

Auk Sigrúnar fluttu ávörp við athöfnina þau Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra flugmála, sem tók fyrstu skóflustungu að viðbyggingunni sumarið 2021, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.

Sigurður Ingi sagði að hin nýju mannvirki mikið framfaraspor fyrir flugsamgöngur á Norðurlandi. Þau styrktu mikilvægt hlutverk Akureyrarflugvallar fyrir svæðið í kring og landið allt, fyrir tengingar innanlands, sem gátt inn í landið og sem varaflugvöll fyrir millilandaflug.

Frá vígsluathöfninni í gær.
Egill Aðalsteinsson

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sagði að gengið hefði verið í framkvæmdina af einurð eins og vanalegt væri á Íslandi. Hún sagði að nýja flugstöðin og flughlaðið væru byggðamál með auknum lífsgæðum fyrir íbúa sem gætu ferðast með auðveldari hætti til útlanda. Þá væru mannvirkin atvinnumál þar sem þau styddu við ferðaþjónustu allt árið og öryggismál því fleiri gáttir væru opnar inn í landið.

Sigrún Björk afhenti að lokum Hjördísi Þórhallsdóttur, flugvallarstjóra á Akureyri, innrammað aðgangskort að stækkaðri flugstöð.

Heimild: Visir.is