Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við lúxushótel við Hörpu eru hafnar

Framkvæmdir við lúxushótel við Hörpu eru hafnar

167
0

Nýtt fimm stjörnu hótel mun rísa upp úr grunninum við Hörpu eftir um tvö ár en framkvæmdir við bygginguna eru loks hafnar. Lögmaður fjárfestanna hvorki staðfestir né neitar að Bill Gates kunni að vera á meðal fjárfesta.

<>

Eftir margra ára hlé eru vinnuvélar loksins farnar að sjást í grunninum við Hörpu. En innan fárra missera rís þar fimm stjörnu hótel Marriot Edition með 250 herbergjum.

Á síðasta ári var gengið frá samkomulagi við bandaríska hótelfjárfestinn Carpenter and Company um byggingu hótelsins. Fyrirtækið fer fyrir fjárfestingunni en fleiri munu koma þar að. Morgunblaðið segist í dag hafa heimildir fyrir því að Bill Gates stofnandi Microsoft sé einn af þeim. En Haraldur Flosi Tryggvason lögmaður fjárfestanna fæst hvorki til að staðfesta það né hrekja.

„En það er verið að grafa eins og þú sérð hér fyrir aftan okkur og það verður hafist handa í haust við að reisa undirstöður að þessu merkilega mannvirki,“ segir Haraldur Flosi. Góðar horfur séu á að það takist að reisa bygginguna innan þess tíma sem menn settu sér.

Carpenter and Company hafa gert samning við borgina til 50 ára en Marriot hótelið sem rís á lóðinni er eitt fárra undir nýju „Edition“ vörumerki lúxushótela keðjunnar.

Þetta er náttúrlega stór framkvæmd á íslenskan mælikvarða?

„Þetta er talsverð bygging já. En það eru nú framkvæmdir hér í kring sem eru alveg á sama mælikvarða,“ segir lögmaðurinn.

Hvenær er áætlað að menn geti gengið hér inn í glæsta sali og skálað í kampavíni fyrir nýju hóteli?

„Það er búið að semja við Marriott keðjuna um að hér verði Marriott Edition hótel árið 2018.“

Hótelbyggingin ein og sér mun kosta um 130 milljónir dollara eða um 16 milljarða íslenskra króna. Enn sem komið eru Carpenter and Company og Eggert Dagbjartsson einu hluthafar byggingarinnar.

„En það munu eflaust koma aðrir hluthafar að þessu þegar fram líða stundir.“

Heimild: Visir.is