Home Fréttir Í fréttum Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar

Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar

14
0
Nýr Landspítali rýs við Hringbraut en ný geðdeildarbygging mun hins vegar ekki rísa á því svæði. Vísir/Vilhelm

Ný bygging fyrir geðþjónustu Landspítala verður staðsett utan Hringbrautarlóðar en þó í innan við fimm kílómetra fjarlægð frá Hringbraut. Undirbúningur að lóðarvali er hafinn í samráði við Reykjavíkurborg og eru áætluð verklok 2030.

<>

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

„Með nýju staðarvali er lagt upp með að hraða framkvæmdum og tryggja að húsnæðið og umhverfi þess uppfylli nútímakröfur um batamiðaða hönnun,“ er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.

Ákvörðunin byggi á ítarlegri valkostagreiningu sem sýni kosti ráðstöfunarinnar og sé í samræmi við tillögu stýrihóps um skipulag framkvæmda við Nýjan Landspítala. Undirbúningur að lóðarvali er hafinn í samráði við Reykjavíkurborg en til að tryggja nálægð við aðra þjónustu spítalans er áætlað að húsnæðið verði í innan við fimm kílómetra fjarlægð frá Hringbraut.

Áætluð stærð nýbyggingarinnar er 24 þúsund fermetrar, áætlaður framkvæmdatími er fimm ár og væntingar um verklok árið 2029 eða 2030.

Núverandi húsnæði ekki boðlegt og Hringbraut óheppileg

Heilbrigðisráðherra tilkynnti á síðasta ári ákvörðun sína um að nýbygging geðþjónustu Landspítala verði hluti af öðrum áfanga uppbyggingar NLSH.

Núverandi húsnæði við Hringbraut og á Kleppi væri ekki boðlegt og ástands-, eiginleika- og hentugleikaskoðun sem gerð var á húsnæðinu staðfesti það.

Í framhaldi af þeirri ákvörðun hafi verið ráðist í valkostagreiningu um staðsetningu sem hafi leitt í ljós að uppbygging við Hringbraut myndi hafa hamlandi áhrif á þróun annarrar starfsemi spítalans á lóðinni til framtíðar. Enn fremur gætu framkvæmdir við nýbyggingu og/eða breytingar á eldra húsnæði ekki hafist fyrr en megnið af eldri byggingum hefðu verið rýmdar. Þannig mætti áætla að geðþjónusta í nýjum húsakynnum kæmist ekki í gagnið fyrr en eftir tíu til fimmtán ár.

Heimild: Visir.is