Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 03.12.2024 Viðbygging við Hrafnagilsskóla efri hæð, íþróttamiðstöð og breytingar rýmis

03.12.2024 Viðbygging við Hrafnagilsskóla efri hæð, íþróttamiðstöð og breytingar rýmis

108
0
Viðbygging við Hrafnagilsskóla

Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í uppbyggingu á 2. hæð Hrafnagilsskóla. Um er að ræða uppsetningu burðarvirkis úr CLT einingum, frágangi að utan og fullnaðarfrágangi að innan auk frágangs við núverandi skólabyggingu Hrafnagilsskóla. Grunn flatarmál þessarar viðbyggingar við skólann er um 900 m2 og mun hýsa ný rými fyrir skóla- og íþróttamiðstöð sveitarfélagsins.

<>

Helstu magntölur í verkinu eru:

  • CLT einingar í veggi um 500 m2
  • Lett Tak þakeiningar um 930 m2
  • Steyptir veggir og plötur um 180 m3
  • Stálbitar og súlur um 3.750 kg
  • Vatnslagnir (H+K) um 900 m
  • Frárennslislagnir um 200 m
  • Streng- og netstigar um 200 m
  • Pípur rafkerfa um 1.500 m
  • Dósir rafkerfa um 350 stk
  • Strengir rafkerfa um 2.200 m
  • Rofar og tenglar um 200 stk
  • Lampar um 150 stk
  • Cat strengir um 1.800 m
  • Gifsveggir um 400 m2
  • Álklæðning um 350 m2
  • Loftræsisamstæða 1 stk
  • Loftstokkar um 300 m

Upphaf framkvæmdatíma er 1.4.2025 eða fyrr og verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30.04.2026.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með föstudeginum 25.10.2024.

Beiðni um afhendingu gagna skal send í tölvupósti á netfangið rab@verkis.is. Útboðsgögn verða afhent að gefnum upplýsingum um nafn, heimili, símanúmer og netfang bjóðanda.

Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Verkís, Austursíðu 2, 603 Akureyri þann 3. desember 2024 klukkan 13.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.