Home Fréttir Í fréttum Starfandi í byggingariðnaði álíka margir og fyrir hrun

Starfandi í byggingariðnaði álíka margir og fyrir hrun

22
0
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Inn­flutningur á helstu byggingar­efnum hefur aukist um næstum 50% frá því á miðju síðasta ári.

<>

Sam­kvæmt Hag­s­já Lands­bankans hefur starfandi í byggingariðnaði fjölgað hratt eftir að hag­kerfið byrjaði að taka við sér eftir kórónu­veirufar­aldurinn.

Fjöldi starfandi í geiranum fór niður í 14 þúsund á tímum far­aldursins en nú starfa þarf um 18 þúsund manns, sem eru álíka margir og um mitt ár 2018.

Lands­bankinn bendir þó á að hér á við um alla sem starfa í byggingar­geiranum en ekki bara þá sem starfa við íbúða­upp­byggingu en erfitt er að segja til um hvernig sá fjöldi skiptist.

Sam­kvæmt könnun Seðla­bankans meðal stjórn­enda 400 stærstu fyrir­tækjanna virðist eftir­spurn eftir starfs­fólki í greininni hafa minnkað á síðustu mánuðum en þó er hún mun meiri en í öðrum at­vinnu­greinum.

Einn helsti mæli­kvarðinn til að fylgjast með krafti í byggingar­geiranum er að skoða inn­flutning á byggingar­efnum, sér­stak­lega timbri.

Sam­kvæmt Hag­s­já Lands­bankans hefur inn­flutningur á helstu byggingar­efnum aukist um næstum 50% frá því á miðju síðasta ári.

„Hér ber aftur að hafa í huga að erfitt er að segja nákvæm­lega til um hversu stór hluti byggingar­efnisins er ætlaður í íbúða­upp­byggingu, en þróunin styður við gögn um nokkuð kröftuga fjár­festingu í íbúðum og at­vinnu­vegum, og einnig aukna veltu í byggingariðnaði síðustu ár.“

Heimild: Vb.is