Enginn slasaðist þegar vinnuvél valt af stalli við hlið kirkjutrappanna neðan við Akureyrarkirkju og langt út á Kaupvangsstræti fyrir hádegi í dag. Stjórnandi vélarinnar slapp með skrekkinn.
Akureyri.net greinir frá en um var að ræða svokallaðan skotbómulyftara. Allt bendir til þess að jarðvegur hafi gefið sig þannig að vélin prjófaði aftur fyrir sig og niður á jörðina.
Heilmikið verkefni var að reisa vinnuvélina við.
Fleiri myndir má sjá á vef Akureyri.net.
Heimild: Visir.is