Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Verkefnið gengur samkvæmt áætlun í Viðlagafjöru

Verkefnið gengur samkvæmt áætlun í Viðlagafjöru

11
0
Viðlagafjara. Mynd: Tigull.is

Framkvæmdir í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum.

<>

Framkvæmdir á svæðinu við Viðlagafjöru halda áfram með góðum hraða og er nú búið að reisa útveggi fyrir sjö fiskeldisker af átta.

Verkefnið gengur samkvæmt áætlun og er mikil ánægja með framvindu þess.

Þá eru framkvæmdir á Stórseiðabyggingunni komnar á lokametrana, en þessi bygging gegnir lykilhlutverki í ferlinu þar sem seiðin verða flutt þangað frá Seiðastöðinni.

Starfsmenn hafa lagt mikla áherslu á gæði og skilvirkni í framkvæmdunum til að tryggja að bæði byggingarnar og búnaður verði tilbúin í tæka tíð. Þetta kemur fram í Facebookfærlsu Laxey.

Heimild: Tigull.is