Home Fréttir Í fréttum Fyrirhuguð risaframkvæmd í Ásahreppi

Fyrirhuguð risaframkvæmd í Ásahreppi

52
0
Ein af myndunum sem var sýnd á íbúafundinum en á henni sést skipulagssvæðið og hvernig það skiptist niður eftir eðli starfseminnar. Mynd / mhh

Um 220 herbergja hótel, baðlón og 165 smáhýsi er fyrirhugað að rísi í Ásahreppi.

<>

Fyrirtækið Steinar Resort ehf. stefnir að því að byggja upp fjölbreytta ferðaþjónustu á jörðinni Ásmúlaseli, Ásmúla 1B og Ásmúla 1C skammt frá þéttbýli Hellu í Rangárþingi ytra.

Sveitarstjórn Ásahrepps bauð til opins kynningarfundar fimmtudagskvöldið 3. október þar sem fjölmargir íbúar mættu til að hlusta á kynningu á verkefninu.

Mikil andstaða kom fram við hugmyndina á fundinum og ekki síst höfðu íbúar miklar áhyggjur af mikilli umferð í kringum starfsemina á sama tíma og fjölmörg hrossaræktarbú eru í næsta nágrenni við fyrirhugaða uppbyggingu.

Gert er ráð fyrir áfangaskiptri uppbyggingu og að uppbygging hefjist sumarið 2026. Borað verður eftir vatni innan svæðisins. Um áttatíu starfsmenn munu verða ráðnir til að sinna rekstrinum og er gert ráð fyrir allt að 55 starfsmannaíbúðum innan svæðisins, þar sem föst búseta verður heimiluð.

Steinar Resort ehf. vinnur að sambærilegu verkefni undir Eyjafjöllum á bænum Steinar 1. Þar er gert ráð fyrir uppbyggingu á svipaðri ferðamannaaðstöðu þar sem gert er ráð fyrir um 200 herbergja hóteli við þjóðveginn. Ekki kom fram á fundinum hver kostnaður við verkefnið er.

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimild: Bbl.is