LED lampa fyrir gatna- og stígalýsingu
Tilboðið felst í að útvega 2.032 LED lampa í eldri hverfi í Garðabæ ásamt og með í ný hverfi sem verið er að reisa.
Svæðið sem lamparnir eru ætlaðir í samanstendur af göngustígum, húsagötum og safn- og tengigötum.
Gerðar eru kröfur til þess að bjóðandi bjóði lampa sem uppfylla útlitskröfur auk tæknilegra og ljóstæknilegra eiginleika og komi vel út í lífferilskostnaðargreiningu, LCC.
Samningur nær til þriggja ára. Frávikstilboð verða ekki leyfð.
Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, reynir@liska.is og verður hægt að nálgast gögn frá og með 8. október 2024.
Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 10:00 þriðjudaginn 12. nóvember 2024
Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn bjóðenda og heildarlífsferilskostnaður af tilboðseyðublaði.
Heimild: Garðabær