Home Fréttir Í fréttum 64 umsóknir um 6 íbúðarhúsalóðir á Borg

64 umsóknir um 6 íbúðarhúsalóðir á Borg

44
0
Mynd: gogg.is.

Á fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps í gær, þann 2. október, úthlutaði sveitarstjórn lóðum í fyrsta áfanga nýrrar byggðar vestan við Borg. Gatnagerð á svæðinu er að mestu yfirstaðin og lokafrágangur við götur og lýsingu í fullum gangi þessa dagana.

<>

„Virkilega gleðilegt er að segja frá því að 64 umsóknir bárust um 6 lóðir og bindum við því vonir við að lóðarhafar hefji framkvæmdir á sínum lóðum með haustinu,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjórninni.

Mynd: Aðsend.

Líkur eru á að nýja byggðin verði mikil lyftistöng fyrir þéttbýlið á Borg og sveitarfélagið allt.

„Viðræður eru hafnar vegna byggingarreits á Miðsvæði og verður gaman að segja nánar frá framvindu þeirra þegar fram í sækir,“ segir einnig í tilkynningunni.

Heimild: Dfs.is