Home Fréttir Í fréttum Fengu 204 umsóknir um sex lóðir

Fengu 204 umsóknir um sex lóðir

109
0
Mynd: VF.is

Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar sér fram á mikla vinnu við að úthluta sex lóðum við Tjarnabraut í Innri-Njarðvík.

<>

Alls bárust 204 umsóknir um þessar örfáu lóðir. Fara þarf yfir umsóknir og fylgiskjöl í samræmi við reglur um lóðaúthlutanir.

„Þar sem margir aðilar sóttu um sömu lóðirnar mun hlutkesti fara fram milli umsóknaraðila.

Skipulagsfulltrúa og starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs er falinn útdráttur milli gildra umsókna og leggja fyrir fund umhverfis- og skipulagsráðs til úthlutunar,“ segir í afgreiðslu ráðsins frá 20. september.

Heimild: VF.is