Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Vinna við utanhússfrágang á meðferðarkjarna gengur vel

Vinna við utanhússfrágang á meðferðarkjarna gengur vel

64
0
Mynd: NLSH ohf.

Vinna er núna í fullum gangi við þakið á meðferðarkjarnanum. Núna er lokið við að setja tvöfalda pappalögn á stöng 1, sem er vestasti hluti byggingarinnar, og einnig komin mjög langt á veg á stöng 2.

<>

Milt og stillt haustveður þessa dagana hjálpar til. Á sama tíma er mjög góður gangur við uppsetningu útveggjanna og núna er einungis austasta stöngin, nr. 5, eftir og á sama tíma er vinna við að koma á festingum og römmum þar fyrir. Að þessu loknu fer að hylla undir endanlegt svipmót byggingarinnar.

Hér er nýjasta myndskeiðið af meðferðarkjarnanum, tekið þann 19 september.

Heimild: NLSH ohf.