Home Fréttir Í fréttum Áform um hótelbyggingu á Hólanessvæðinu á Skagaströnd

Áform um hótelbyggingu á Hólanessvæðinu á Skagaströnd

289
0
Rauða húsið efst á myndinni er fyrirhuguð hótelbygging á svokölluðu Hólanessvæði á Skagaströnd. Mynd: Pro Ark Teiknistofa.

Félagið Hólanes ehf. hefur uppi áform um byggingu Hótels við Fjörubraut 6 á Skagaströnd. Að sögn Adolfs H. Berndsen, stjórnarformanns í félaginu, er málið í farvegi og m.a. verið að leggja lokahönd á viðskiptaáætlun.

<>

Á sveitarstjórnarfundi á Skagaströnd í byrjun marsmánaðar voru kynnt frumdrög að teikningu hótels sem teiknað er á lóð Fjörubrautar 6 á Skagaströnd. Um er að ræða lóð á svokölluðu Hólanessvæði, þar sem nú stendur m.a. áhaldahús sveitarfélagsins, við hliðina á Nes listamiðstöð.

Heimild: Feykir.is