Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 23.09.2024 Endurnýjun á innilaug Sundlaugar Akureyrar

23.09.2024 Endurnýjun á innilaug Sundlaugar Akureyrar

92
0

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í endurnýjun á innilaug í Sundlaug Akureyrar.

<>

Verkið verður boðið út í iðngreinaútboði sem skipt er upp í eftirfarandi útboð:

  • Sögun og múrbrot
  • Lagnir
  • Raflagnir
  • Húsasmíði
  • Blikksmíði
  • Stálsmíði
  • Múrverk og flísalögn

Um er að ræða heildar endurnýjun á allri aðstöðu við innilaug ásamt stækkun á aðstöðurými. Verklok eru 30 júlí 2025.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 6. sept. 2024.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 23. september 2024 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Heimild: Akureyri,is