Vegna malbikunarframkvæmda verður Hellisheiði lokuð til austurs frá klukkan 9 á fimmtudagsmorgun, þann 22. ágúst.
Reiknað er með að vegurinn verði opnaður aftur um klukkan 7 á föstudagsmorgun.
Hjáleið verður um Þrengslaveg og Þorlákshafnarveg en opið verður fyrir starfsfólk að Hellisheiðarvirkjun.
Heimild: Sunnlenska.is