Home Fréttir Í fréttum 02.06.2016 Vesturbugt – Forval EES

02.06.2016 Vesturbugt – Forval EES

178
0

Forval nr. 13659  – Vesturbugt EES

<>
Reykjavíkurborg óskar eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum til að taka þátt í forvali og samkeppnisviðræðum vegna sölu byggingarréttar og uppbyggingu á lóðum 03 og 04 við Hlésgötu í Vesturbugt.
Lóðirnar eru í hjarta Reykjavíkur með útsýni m.a. yfir höfnina, sjóinn og Esjuna og má ætla að þetta sé eitt eftirsóttasta byggingarsvæði í Reykjavík.
Viðræðurnar munu snúast um kaup á byggingarrétti á framangreindum lóðum, útfærslu fyrirhugaðrar uppbyggingar auk sölu til Reykjavíkurborgar á íbúðum, atvinnuhúsnæði og bílakjallara á lóðunum. Kaupandi byggingarréttarins fær rétt til þess að hanna og byggja á tveimur lóðum í Vesturbugt um 170 – 176 íbúðir og atvinnu¬húsnæði, sem staðsett er á jarðhæðum bygginganna. Húsin verða alls um 18.400 m2, þar af verður atvinnuhúsnæði tæpir 1.700 m2. Auk þess verða bílageymslur o.fl. undir húsunum, sem áætlaðar eru um 10.200 m2.
Reykjavíkurborg áformar að kaupa um 74 íbúðir af íbúðunum 170 – 176 samkvæmt tilboði bjóðanda. Einnig skal tilboð ná til byggingar bílgeymslna undir húsunum með að um 170 bílastæðum, sem áformað er að rekin verði af Bílastæðasjóði Reykjavíkur.
Íbúðir, sem Reykjavíkurborg kaupir, skulu afhentar að innan tilbúin til innréttingar. Hús að utan, lóðir og bílgeymslan skulu vera fullbúin.
Í forvali verða valdir umsækjendur, sem gefinn verður kostur á að taka þátt í samkeppnisviðræðum.
Forvalið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Hægt er að nálgast forvalsgögn og umsóknareyðublað hjá innkaupadeild Reykjavíkurborgar frá og með þriðjudeginum  26. apríl 2016, með því að senda tölvupóst á netfangið utbod@reykjavik.is með upplýsingum um:
• Nafn
• Heimilisfang
• Kennitölu
• Tengilið
• Símanúmer
• Netfang tengiliðs
Umsóknum um þátttöku í framangreindum samkeppnisviðræðum skal skila ásamt umbeðnum upplýsingum í lokuðu umslagi, merktu „Innkaupadeild Forval nr. 13659 vegna lóða og uppbyggingar í Vesturbugt“ til Þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 10:00 þann 2. júní 2016.
Sérstakur kynningarfundur um verkefnið í Vesturbugt og uppbygginguna verður auglýstur sérstaklega.
Sjá má yfirlitsmyndir hér.