Home Fréttir Í fréttum Hleðslugarður GTS opnar í september á Selfossi

Hleðslugarður GTS opnar í september á Selfossi

41
0
Ljósmynd/GTS

Framkvæmdir við hleðslugarð GTS ehf við Fossnes 7 á Selfossi eru í fullum gangi og áætlað er að opna svæðið þann 13. september næstkomandi.

<>

Í hleðslugarðinum verða fimmtán hleðslustöðvar með 26 tenglum i fyrsta áfanga og eru stöðvarnar fyrir allar stærðir af bílum. Hleðslugeta stöðvanna verður frá 90kw allt upp í 600kw. Þetta verður öflugasta hleðslustöð landsins með heildar hleðslugetu upp á 1.440 kw.

Markmið GTS er að sýna fram á að rafvæðing sé raunhæfur kostur fyrir hóperðafyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið stefnir að því að vera leiðandi í orkuskiptum í hópferðastarfsemi á Íslandi. GTS leggur áherslu á græna orku, að draga úr mengun og vistvænan rekstur.

Á hleðslustöðinni verður hægt að hlaða allt að 30 bíla, stóra sem smáa og verður stöðin öllum opin. Hleðslutenglar verða 90 kw, 180 kw, 300 kw og 600 kw.

GTS er nú með þrjá rafknúna bíla í flota sínum, meðal annars 49 farþega lúxus rafmagnsrútu með 422 kW rafhlöðu. Drægni hennar er 350-400 km á hleðslunni. Einnig á GTS fyrsta rafmagnsstrætisvagn landsins sem er í fastri útleigu allt árið og nýlega bættist svo rafmagnsstrætó í flotann.

Sá vagn tekur 37 farþega og er með þriggja punkta öryggisbelti í öllum sætum. Drægni vagnsins dugar til að keyra allar ferðir dagsins, með smá hleðslustoppi inn á milli ferða á veturna.

Heimild: Sunnlenska.is