Home Fréttir Í fréttum Hringvegurinn opnaður en öku­menn beðnir um að sýna til­lits­semi

Hringvegurinn opnaður en öku­menn beðnir um að sýna til­lits­semi

16
0
Hlaup úr Mýrdalsjökli eru árviss viðburður en hlaupið í ár er með þeim umfangsmeiri í langan tíma. SVEINBJÖRN DARRI MATTHÍASSON

Hringvegurinn við Skálmarbrú var opnaður á ellefta tímanum í gærkvöldi, en með þeim takmörkunum að vegurinn er einbreiður. Umferð var stýrt með ljósum yfir brúna í nótt, eftir því sem kemur fram á vef Vegagerðarinnar, en fjöldi ökumanna beið eftir að komast leiðar sinnar í gærkvöldi.

<>

Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og virða merkingar. Viðgerðir standa yfir á veginum austan við ána Skálm, en hann fór í sundur eftir stórt jökulhlaup úr Mýrdalsjökli, sem kunnugt er. Einnig urðu miklar skemmdir á um 700 metra vegkafla og er vegurinn þar verulega laskaður eftir flóðið.

Hlaupið í ánni Skálm er nú í rénun, vatnshæð hefur lækkað og rafleiðni sömuleiðis, að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Ekkert bendir til annars en að hlaupinu ljúki smám saman en fylgst er grannt með gangi mála og segir Elísabet það geta tekið hlaupið nokkra daga að skila sér alveg niður þar til áin kemst í eðlilegt horf.

Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli síðan flóðið hófst og má búast við því áfram, en rólegt var hins vegar í nótt. Skjálftarnir geta þýtt að katlarnir séu að tæma sig, að sögn Elísabetar, það er þó ekki nákvæmlega vitað en líklegt að einhver tengsl séu á milli atburðanna.

Mikil úrkoma hefur verið á sunnanverðu landinu og má búast við vatnavöxtum í Þórsmörk og nágrenni vegna þessa. Vatnsmagn jókst í ám á svæðinu í nótt samkvæmt mælitækjum og gæti haldið áfram í dag á þeim svæðum sem Veðurstofan telur ástæðu til að fylgjast með á Suðurlandi, Suðausturlandi og miðhálendinu.

Enn er úrkomuspá á svæðinu en útlit fyrir að stytti upp þegar líður á daginn, ef spákort reynast rétt. Skilboð til ferðamanna eru að fylgjast grannt með og fara varlega.

Heimild: Visir.is