Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging Veggklæðningar og ísetning glugga, glerveggja og hurða.
Rangárþing ytra er að byggja 2700m2 viðbyggingu við grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslu eldhús, hátíðarsal, bókasafn, tónlistaskóla ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik-og grunnskóla.
Verkið snýst um ísetningu á Reyaners álgluggum og glerveggjum með hurðum sem verkkaupi afhendir í verkið. Einnig er óskað eftir verðum utanhúss klæðningu, efni og vinnu frágenginni samkvæmt verklýsingu.
Gögnin er hægt er að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum. Útboðsgögn verða afhent frá mánudeginum 15. júlí.
Verkið skal vinnast frá 15.08.2024 og vera að fullu lokið 30.06.2025
Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra, eigi síðar en þriðjudaginn 7. ágúst 2024 kl. 14:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn.
Helstu magntölur eru:
ÚV-CA – Útveggjaklæðning – Báruál | 796 | m² |
Álpanelklæðning við útbyggða glugga | 75 | m² |
Einangrun útveggja við útbyggða glugga | 40 | m² |
Uppbygging í kringum útbyggða glugga | 8 | stk |
Álpanelklæðning við þakglugga og loftræstingu á þaki | 56 | m² |
Reynars Masterline 8 gluggar | 63 | stk |
Glerveggir og hurðir | 25 | stk |
Þakgluggar 3 stk
Heimild: Rangárþing ytra