Home Fréttir Í fréttum Vinnu við nýjan varnargarð við það að ljúka

Vinnu við nýjan varnargarð við það að ljúka

32
0
Skjáskot af Ruv.is

Vinna er langt komin við að reisa enn einn varðargarðinn við Grindavík, í norðanverðu Sýlingarfelli.

<>

Nokkru sunnar, við Hagafell, eru miklar sprungur og varasamt getur verið að fara þar um.

Margir starfsmenn verktakafyrirtækja hafa verið við störf í nágrenni Grindavíkur nánast sleitulaust frá því í nóvember í fyrra. Þó er engan bilbug á þeim að finna, og vinna við enn einn varnargarðinn er langt komin.

Garðinum er ætlað að létta álagið á stóra varnargarðinum sem ver mannvirki í Svartsengi.

Um tuttugu þúsund rúmmetrar af efni fara í byggingu hans og mun hann standa um tuttugu og fimm metra yfir landslaginu.

Heimild: Ruv.is