Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Nýr Landspítali: Búið að steypa síðasta hluta þaks bílastæða – og tæknihússins

Nýr Landspítali: Búið að steypa síðasta hluta þaks bílastæða – og tæknihússins

69
0
Mynd: NLSH.is

Í byrjun júlí var síðasta hluti þaks bílastæða og tæknihússins steyptur. Þá verður steypuvinnu að mestu lokið. Vinna við innanhússfrágang er í fullum gangi.

<>

Verið er að einangra og múra veggi í tæknihluta hússins. Einnig er verktaki að slípa veggi og plötur auk þess er rafmagnsvinna hafin.

Verktaki er að steypa upp lagnagang er liggur á milli bílastæða – og tæknihúss og rannsóknahúss.

Einnig er hafin vinna við tengigang norður sem mun liggja frá bílastæðahluta hússins að rannsóknahúsi og meðferðarkjarna.

Stefnt er að því að taka bílastæðahlutann í notkun í byrjun árs 2025.

Heimild: NLSH.is