F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Orkureitur – Yfirborðsfrágangur – 1. áfangi, útboð nr. 16038.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Framkvæmdin felur í sér lagnavinnu og yfirborðsfrágang á norðvestur hluta Orkureits. Nánar
tiltekið Dalsmúla og vistgötu samsíða Suðurlandsbraut. Nýjar lagnir Veitna og samskiptamiðla
verða lagðar til að þjónusta nýja byggð á svæðinu.
Yfirborð verður fullfrágengið með hellum, kantsteinum, gróðurbeðum og bekkjum.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
– Upprif og förgun á núverandi malbiki og kantsteini
– Upprif og förgun á núverandi hellulögn
– Uppgreftri fyrir veitulagnir
– Fullnaðarfrágangur fyllinga undir götu og gangstéttar
– Fullnaðarfrágangur fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, raflagna og fjarskiptalagna
– Fullnaðarfrágangur hellulagnar og kantsteina
– Fullnaðarfrágangur blágrænna beða
– Fullnaðarfrágangur götulýsingar
Helstu magntölur verksins eru:
- Upprif malbiks og hella 1.400 m
- Púkkmulningur 600 m2
- Jarðvinna fyrir lagnir 900 m3
- Malbik 1.000 m2
- Hellur 950 m2
- Ecoraster 305 m2
- Fráveitulagnir 145 m
- Vatnslagnir 100 m
- Hitaveitulagnir 520 m
- Þökulögn 875 m2
- Gróðursetning planta 312 stk
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00: þann 3. júlí 2024. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 19. júlí 2024.