Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára.
Við fjölluðum í síðasta mánuði um öfluga jarðgangagerð Færeyinga. Þar ber hæst Austureyjargöngin og Sandeyjargöngin. En stóri draumurinn er eftir; að grafa göng milli Sandeyjar og Suðureyjar.
Og það er auðheyrt á þeim færeysku stjórnmálamönnum, sem rætt var við í fréttum Stöðvar 2, að þeir hafa metnað til að tryggja íbúum eyjanna góðar samgöngur með jarðgöngum.
„Núna erum við að tala um að leggja ein til Suðureyjar. Það verða um 25 kílómetra göng. Það verða lengstu göng Færeyja,” segir borgarstjórinn í Þórshöfn, Heðin Mortensen.
Og það styttist í ákvörðun um göng sem áætlað hefur verið að geti kostað á bilinu 75 til 110 milljarða íslenskra króna.
„Það er næsta ákvörðun. Við komum til með að taka hana innan hálfs árs,” segir Høgni Hoydal, utanríkis- og atvinnumálaráðherra Færeyja og formaður Þjóðveldis.
Til viðbótar um tuttugu jarðgöngum í gegnum fjöll á landi eru Færeyingar komnir með fern neðansjávargöng milli eyja. Suðureyjargöngin munu þó toppa öll hin göngin. Sú útfærsla sem núna er helst rætt um er að hafa þau í tvennu lagi um Skúfey, níu og sautján kílómetra löng.
En telja þeir að verkefnið sé raunhæft og að það verði að veruleika?
„Ég trúi því. Ég er sannfærður um að þau koma. Við vinnum hart að því að finna út hvernig við gerum þetta og hversu djúpt þau eiga að liggja. Ég trúi því að eftir þrjú ár verðum við komnir af stað. Ég er viss um það,” segir Heðin borgarstjóri.
Høgni Hoydal segir að hinn valkosturinn sé að smíða nýja ferju og hún kosti sitt.
„Ef við gerum þetta ekki verðum við að smíða nýtt skip, nýjan Smyril eins og skipið heitir sem siglir til Suðureyjar. Það kostar sitt og það fara miklir peningar í upphafi í að fjármagna ferjuna. Og ef við reiknum þetta út til 30 eða 40 ára þá borgar sig að gera göng í staðinn,” segir Høgni.
En myndi hann ráðleggja Íslendingum að grafa göng til Vestmannaeyja og spara um leið kostnað við ferjusiglingar?
„Ég færi aldrei að segja hvað Íslendingar ættu að gera. Það vita Íslendingar betur.
Við fáum innblástur hver frá öðrum og við höfum lært mikið af Íslendingum. Og ef Íslendingar vilja koma til Færeyja og sjá hvernig við gerum þetta þá eru þeir alltaf velkomnir.
En ég mun aldrei segja hvaða ákvörðun Íslendingar eiga að taka. Það verðið þið að gera sjálfir,” svarar Høgni Hoydal.
Heimild: Visir.is