Home Fréttir Í fréttum Ljóst að einhverjar verslanir Kringlunnar verða ekki opnaðar á næstunni

Ljóst að einhverjar verslanir Kringlunnar verða ekki opnaðar á næstunni

36
0
Myn: RÚV – Guðmundur Bergkvist

Þær verslanir Kringlunnar sem urðu fyrir mestu tjóni í brunanum á laugardag verða ekki opnaðar á næstunni. Hreinsun gengur vel og stefnt er að opnun á fimmtudag.

<>

Þær verslanir í Kringlunni sem urðu fyrir mestu tjóni þegar eldur braust þar út um helgina verða ekki opnaðar á næstunni. Tryggingafélög meta tjónið sem fyrirtækin urðu fyrir.

Kringlan hefur verið lokuð síðan á laugardag þegar kviknaði í þaki á austurbyggingu hennar. Slökkvistarf gekk vel en verulegt tjón varð á hluta hússins vegna vatnsskemmda.

Stjórn Kringlunnar átti fund með tryggingafélögunum í morgun. Tryggingamálin eru flókin þar sem Kringlan er tryggð hjá einu félagi og verslunareigendur eru hver og einn með sína tryggingu.

Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar, segir ekki rétt að tala um altjón í byggingunni.

„Það er erfitt að kalla þetta altjón því það er ekki allt ónýtt. Það er um verulega mikið tjón að ræða í einu til tveimur bilum.“

Stefnt er að því að opna Kringluna að nýju á fimmtudag. Þær verslanir sem urðu fyrir mestu tjóni verða þó ekki opnaðar á næstunni.

„Auðvitað opna ekki þær verslanir sem urðu fyrir mesta tjóninu. Þær verða lokaðar af. Við erum að vonast til að sem flestar verslanir geti opnað. Þær verslanir sem urðu fyrir mesta tjóninu eru Gallerí 17, Macland, Kúltúr-búðirnar og Marco Polo sem eru hér á efri hæðinni og þær verslanir sem eru þar undir.“

Að sögn Ingu eru allir rekstraraðilar tryggðir fyrir tekjumissinum sem þeir kunna að verða fyrir á meðan Kringlan er lokuð. Það sé þó mikilvægt að ná að opna verslunarmiðstöðina aftur á fimmtudag. Forgangsmál sé að finna út úr tryggingamálum hvers og eins.

„Hreinsunarstarf gengur mjög vel. Við erum bara öll að vinna saman að því að allar verslanir geti hafist handa við það sem snýr að tryggingafélögunum og ég tel að það sé komið á mjög gott ról og við höldum bara ótrauð áfram.“

Heimild: Ruv.is