Tilboðsfrestur vegna útboðs Kvíslarskóli – Frágangur lóðar, málsnúmer 202404259, rann út þann 13. júní kl 14:00. Fimm aðilar sendu inn tilboð áður en skilafrestur rann út.
Eftirfarandi tilboð bárust:
- Gleipnir verktakar ehf – 69.000.000 kr.
- Fagurverk ehf – 65.653.500 kr.
- Membra ehf – 57.732.500 kr.
- Mostak ehf – 68.592.070 kr.
- Garðaþjónusta Reykjavíkur ehf – 72.679.500 kr.
Kostnaðaráætlun: 79.361.500 kr.
Tilboðsfjárhæðir eru hér birtar með fyrirvara um yfirferð tilboða m.t.t. hæfis bjóðenda og réttra útreikninga í tilboðsskrá. Tilboð bjóðenda verða nú yfirfarin m.t.t. þessa og niðurstaða útboðs tilkynnt í kjölfarið.
Heimild: Mosfellsbær