Um átta hundruð nýjar íbúðir verða byggðar á Ásbrú í Reykjanesbæ á næstu árum, auk þess sem nokkrir nýir grunn- og leikskólar verða byggðir, ráðstefnuhöll, verslanir, veitingahús og hótel svo eitthvað sé nefnt. Framkvæmdirnar munu kosta um 140 milljarða króna.
Það er Kadeco sem stýrir uppbyggingunni á Ásbrú en Kadeco er þróunarfélag í eigu fjármálaráðuneytisins, sem var upphaflega stofnað til að koma eigum varnarliðsins í borgaraleg not eins og það er kallað.
„Við erum í samvinnu við Reykjanesbæ að bjóða út lóðir og við erum komin í deiliskipulagsverkefni sömuleiðis upp undir 800 íbúðir, sem á að byggja hérna á næstu árum,” segir Pálmi Freyr Randversson, forstjóri Kadeco og bætir við.
„Þetta er virkilega spennandi verkefni og þarft verkefni. Íslenska ríkið tekur við þessum eignum hérna á Ásbrú fyrir næstum 20 árum og ýmislegt hefur gerst. Það er búið að selja allar eignirnar nú þegar og hérna býr fullt af fólki, hér er dásamlegt samfélag og núna ætlum við að taka næsta skref, þétta byggð og bjóða upp á meiri þjónustu, verslun, veitingahús og þess háttar.”
Í dag búa um 5 þúsund íbúar á Ásbrú en eftir tuttugu ár verða þeir orðnir um 15 þúsund ef áætlanir Kadeco ganga eftir.
En það á ekki bara að byggja íbúðarhús á Ásbrú.
„Við erum náttúrulega mitt á milli Ameríku og Evrópu. Við sjáum möguleika hérna að byggja litla útgáfu af Hörpu þannig að það sé hægt að hittast á þessu svæði og halda ráðstefnur, fundi og þess háttar,” segir Pálmi.
En hver er kostnaður við verkefnið?
„K 64 áætlunin okkar hjá Kadico hún gerir ráð fyrir 140 milljörðum til næstu 25 ára í fjárfestingum á svæðinu.”
En af hverju ætti fólk að flytja á Ásbrú?
„Hérna ertu steinsnar frá umheiminum, þú býrð við hliðina á flugvelli þannig að þú ert enga stund að fara hvert sem þig langar að fara. Hérna eru uppbyggingartækifærin gríðarleg og atvinnutækifærin eru ótrúlega og eiginlega hvergi meiri á landinu,” segir Pálmi Freyr.
Heimild: Visir.is