Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í verkið: Miðlunargeymir nr. 2 við Heimsenda.
Verkið felur í sér byggingu á 4.000m3 staðsteyptum neysluvatnsmiðlunargeymi við Heimsenda, í vestanverðri Vatnsendahlíðinni, ásamt gerð aðkomuvegar, plans, uppsetningu girðingar og lagningu lagna út frá miðlunargeymi.
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign fyrir kl. 10:00 miðvikudaginn 26. júní 2024.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.