Home Fréttir Í fréttum Byggt ofan á útbyggingar Holtaskóla í Reykjanesbæ

Byggt ofan á útbyggingar Holtaskóla í Reykjanesbæ

50
0
Svona verður útlit skólans með viðbyggingum.

Reykjanesbær hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð Holtaskóla. Skipulagssvæðið afmarkast af Skólavegi í norðri, Sunnubraut í austri, lóð Fjölbrautaskólans í suðri og grænu svæði í vestri.

<>

Helstu breytingar eru að ein hæð verður byggð ofan á útbyggingar á suðausturhorni skólans. Byggð verður tveggja hæða bygging á milli tveggja álma í porti sem vísar í norður.

Byggingarmagn er aukið. Hámarksnýtingarhlutfall eftir stækkun verður 0,42 eða um 5700 m2 með A og B rýmum.

Heimild: Vf.is