Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 14.06.2024 Rangárþing ytra. „Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging: Þakfrágangur“

14.06.2024 Rangárþing ytra. „Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging: Þakfrágangur“

119
0

Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging: Þakfrágangur“.

<>

Rangárþing ytra er að byggja 2700 m2 viðbyggingu við Grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslueldhús, hátíðarsal, bókasafn og tónlistaskóla, ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla.

Verkið snýst um frágang á þökum suðurbyggingar grunnskólans á Hellu með þakpappaeinangrun og úthagatorfi á viðsnúin þök og einnig rakavarnalag, einangrun og þakpappa á heit þök.

Útboðsgögnin er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum eða fá aðgang að þeim á þessari síðu með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan og skrá netfang.

Útboðsgögn má nálgast hér:

Verkið skal vinnast frá 15.07.2024 og vera að fullu lokið 30.09.2024

Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra eigi síðar en 14. júní 2024 kl. 14:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn.

Heimild: Ry.is