Home Fréttir Í fréttum 25.06.2024 Útboð á nýrri leikskólabyggingu Húnabyggðar

25.06.2024 Útboð á nýrri leikskólabyggingu Húnabyggðar

103
0
Mynd: Húnabyggð

Húnabyggð óskar eftir tilboðum í uppsetningu og afhendingu á ca. 650-700 m2 leikskóla úr húseiningum, timbur- eða gáma-einingum til leigu á lóð við hlið núverandi leikskóla að Hólabraut 17 með kaups­réttar­ákvæðum.

<>

Í byggingunni verða fjórar leikskóladeildir. Húnabyggð leggur til lóð, jarðvinnu og þjappaða fyllingu undir undirstöður og heimæðar veitukerfa lagðar að lóðarmörkum en leigusali skal skila byggingunni fullfrágenginni og tilbúinni til notkunar við afhendingu.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef verkefnisins:

https://utbodsgatt.is/hunabyggd/holabraut17-blonduosi

Tilboðum skal skila rafrænt undir sömu vefslóð fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júní 2024