Ríkiskaup, fyrir hönd aðila að rammasamningakerfi ríkisins, standa fyrir þessu útboði á þjónustu iðnmeistara um viðhald, viðbætur og endurnýjun á fasteignum.
Heimilt er að bjóða í einstaka hluta útboðsins. Útboðið og samningar í kjölfar þess taka til alls landsins, en umfang kann þó að vera mismunandi í hverjum hluta útboðsins fyrir sig.
Þjónustuflokkar/Iðngreinar sem útboðið tekur til.
- Blikksmíði
- Dúkalögn
- Málun
- Málmiðn (önnur en blikksmiði)
- Múrverk
- Pípulögn
- Rafiðn(smáspenna og lágspenna)
- Skrúðgarðyrkja
- Trésmíði
Bjóðendur skulu uppfylla allar lögboðnar kröfur til að starfa við iðn sína.
Allar nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.
Útboðsgögn afhent: | 02.05.2024 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 04.06.2024 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 04.06.2024 kl. 13:00 |
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaup