Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 14.05.2024 Hlemmur og nágrenni 4. áfangi – Gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir –...

14.05.2024 Hlemmur og nágrenni 4. áfangi – Gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir – Eftirlit

110
0
Mynd: RÚV – Ragnar Visage

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Veitna ohf. og Ljósleiðarans ehf., er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Hlemmur og nágrenni 4. áfangi – Gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir – Eftirlit, útboð nr. 16002.

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit með öllum framkvæmdum fyrir USK, Veitur ohf. og Ljósleiðarinn ehf. vegna áfanga 4 sem er endurgerð hluta Laugavegs og Rauðarárstígs.

Um er að ræða eftirlit með jarðvinnu, lagnavinnu og yfirborðsfrágangi. Innifalið er einnig eftirlit með öryggis- og aðgengismálum, m.a. merkingum vinnusvæða.

Helstu verkþættir sem eftirlitið snýr að eru:

  • Upprif og förgun á malbiki og kantsteini núverandi götu
  • Upprif og förgun á núverandi hellulögn
  • Losun á klöpp í lagnasvæðum stofnlagna
  • Uppgreftri og jarðvegsskiptum
  • Fullnaðarfrágangur fyllinga undir götu og gangstéttar
  • Fullnaðarfrágangur fráveitu, hluta hitaveitu og raflagna
  • Fullnaðarfrágangur hellulagnar og kantsteina
  • Fullnaðarfrágangur blágrænna beða
  • Endurnýjun götulýsingu

Áætluð samningslok: 31. janúar 2025

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:30, föstudaginn 26. apríl 2024. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 14. maí 2024.