Landsnet óskar eftir tilboðum í útboð SN2-01. Ráðgerðar framkvæmdir í þessu verki eru í aðalatriðum eftirfarandi:
• Leggja slóðir og plön að mastursstæðum í línunni þar sem þess er þörf.
• Koma fyrir forsteyptum undirstöðum.
• Koma fyrir stagfestum. Flestar stagfestur eru bergboltar (með eða án fóðurröra) en einnig eru forsteyptar staghellur.
• Koma fyrir jarðskautum.
• Nauðsynleg jarðvinna til að ljúka ofantöldum verkliðum.
Útboðsgögn afhent: | 23.04.2024 kl. 08:00 |
Skilafrestur | 23.05.2024 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 23.05.2024 kl. 14:00 |
Nánari lýsingu á verkinu er að finna í verklýsingu útboðsgagna SN2-01 sem aðgengileg eru á útboðsvef Landsnets.