Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 08.05.2024 Hverfið mitt 2024 – Austur – Breiðholt og Árbær

08.05.2024 Hverfið mitt 2024 – Austur – Breiðholt og Árbær

71
0
Mynd: mbl.is/Ómar Óskarsson

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2024 – Austur – Breiðholt og Árbær, útboð nr. 15999

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2024 í austurhluta Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir gröftur, fylling, hellulögn, þökulögn, lýsing og stálsmíði

Helstu magntölur eru: 
• Gröftur                                380  m3
• Fylling                                296  m3
• Cortenstál                           646  kg.
• Stálvirki                                78  kg.
• Forsteyptur kantsteinn            61  m
• Hellulögn                            183  m2
• Þökulögn                            154  m2
• Steinefni/salli                      100  m2
• Jarðstrengir                          148  m
• Ljósastaurar reistir                 2  stk.

Verklok: 1. október 2024. 

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00 þann 23. apríl 2024.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 14:00 þann 8. maí 2024.