Home Fréttir Í fréttum 120 herbergja Íslandshótel og Skógarböðin stækkuð verulega

120 herbergja Íslandshótel og Skógarböðin stækkuð verulega

141
0
Teikning af hótelinu sem rísa mun steinsnar frá Skógarböðunum við rætur Vaðlaheiðar.

Hótelið sem rís á næstu misserum við Skógarböðin verður rekið af Íslandshótelum. Hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer, eigendur Skógarbaðanna, reisa bygginguna en hafa samið við þessa stærstu hótelkeðju landsins um að taka að sér reksturinn.

<>

Skógarböðin sjálf verða stækkuð verulega samtímis því að hótelið rís. Þau verða rúmlega tvöfalt stærri en í dag og að framkvæmdum loknum verður samfellt baðlón frá hótelinu að núverandi húsnæði baðanna.

Á hótelinu verða 120 herbergi, öll tveggja manna, þar af 12 svítur.

Hótelið verður í tveimur álmum. Önnur álman verður fjögurra hæða en hinn fimm, fimmta hæðin inndregin. Þar verður 220 manna ráðstefnusalur og bar.

Svokallað fellingaleyfi fékkst fyrir nokkru og hafa Finnur og hans menn þegar fellt þau tré sem nauðsynlegt er vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Þar er um að ræða tiltölulega mjótt svæði eins og sést á myndunum hér að neðan. Enginn trjágróður var á eyrinni í fjöruborðinu þar sem hótelið rís.

Einnig fékkst leyfi til þess að moka til prufu á svæðinu þar sem nýr hluti baðanna verður en að öðru leyti eru framkvæmdir á undirbúningsstigi.

Stefnt er að því opna hótelið eftir rúmlega eitt og hálft ár, um áramótin 2025 – 2026.

Heimild: Akureyri.net