Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 29.04.2024 Bolungarvík. Gatnagerð og lagnir í Lundahverfi

29.04.2024 Bolungarvík. Gatnagerð og lagnir í Lundahverfi

109
0
Mynd: Bolungarvík

Verkið felur í sér gatnagerð, lagning fráveitu-, vatnsveitulagna, ídráttarör, útlagning strengja í samstarfi við Mílu, Orkubú Vestfjarða og Snerpu ehf. Ljósastauralagnir, ljósastaurar, umferðar- og götumerkingar ásamt yfirborðsfrágangi og gerð göngustíga fyrir nýtt Lundarhverfi í Bolungarvík.

<>

Meðal helstu verkþátta eru:

  • · Útgröftur úr götustæði 3.400 m3
  • · Gröftur fyrir lögnum 12.100 m3
  • · Fylling og burðarlög 2600 m3
  • · Fráveitulagnir. 1.900 m
  • · Vatnsveitulagnir. 1.000 m
  • · Jarðstrengir 3.400 m
  • · Hellulagðar gangstéttir 2.300 m2

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti gegn því að senda tölvupóst á netfangið: finnbogi@bolungarvik.is

Nánari upplýsingar gefur Finnbogi Bjarnason í síma 450-7000, 863-9934 og eða í gegnum netfangið finnbogi@bolungarvik.is

Tilboðum skal skila til Tæknideildar Bolungarvíkurkaupstaðar ráðhúsinu við Aðalstræti 10-12 í Bolungarvík eða í tölvupósti á netfangið finnbogi@bolungarvik.is fyrir kl. 14.00 mánudaginn 29. apríl 2024 þar sem þau verða opnuð kl. 14:15 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.