Home Fréttir Í fréttum 200 milljónir í leikvelli í Breiðholti og Grafarvogi

200 milljónir í leikvelli í Breiðholti og Grafarvogi

62
0
Skólalóðin við Ártúnsskóla. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Alls verða þrjár lóðir við leik- og grunn­skóla Reykja­vík­ur­borg­ar end­ur­gerðar á ár­inu. Enn frem­ur verða þrjú leik­svæði í Breiðholti end­ur­gerð.

<>

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Verklok í októ­ber

Leik­skóla­lóðirn­ar sem um ræðir eru við Suður­borg og Borg-Arn­ar­borg en grunn­skóla­lóðin er við Borg­ar­skóla.

Sam­kvæmt Reykja­vík­ur­borg fel­ur end­ur­gerð skóla­lóða í sér heild­ar end­ur­skipu­lagn­ingu lóða og end­urnýjun frá grunni.

Að auki verða veru­leg­ar end­ur­bæt­ur á lóð leik­skól­ans Bergs og á lóð Hlíðaskóla þar sem yf­ir­borðsefni á körfu­bolta­velli verður end­urnýjað.

Áætlaður kostnaður við verkið er 150 millj­ón­ir króna. Gert er ráð fyr­ir að hægt verði að hefja fram­kvæmd­ir í maí og áætlað að þeim ljúki í októ­ber 2024.

Borg­ar­ráð hef­ur heim­ilað um­hverf­is- og skipu­lags­sviði að bjóða út þess­ar fram­kvæmd­ir og einnig fram­kvæmd­ir vegna end­ur­gerðar op­inna leik­svæða.

Fjar­lægja perlu­möl

Þrjú leik­svæði í Breiðholti verða end­ur­gerð, en þau eru í Krumma­hól­um, Vest­ur­bergi og Bakka­seli.

End­ur­nýja á yf­ir­borð leik­svæða, það er fjar­lægja perlu­möl og setja hell­ur, gras og gervi­gras í staðinn og leik­tæki verða end­ur­nýjuð eft­ir þörf­um. Lögð er áhersla á að gera leik­svæðin aðgengi­leg fyr­ir alla og bæta lýs­ingu þar sem þess er þörf.

Áætlaður kostnaður við fram­kvæmd­irn­ar er 50 millj­ón­ir króna. Gert er ráð fyr­ir að hægt verði að hefja fram­kvæmd­ir í byrj­un maí og áætlað að þeim ljúki í sept­em­ber 2024.

Heimild: Mbl.is