Rammasamningur um kaupa á þjónustu verktaka fyrir umhverfissvið Kópavogsbæjar 2024-2027
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í þjónustu verktaka fyrir umhverfissvið Kópavogsbæjar.
Útboð þetta er rammasamningsútboð og er heimilt að bjóða í einstaka flokka útboðsins eða alla og verða gerðir samningar við alla verktaka í hverjum verkflokki (hluta) sem uppfylla skilyrði útboðs.
Verkflokkar sem óskað er tilboða í eru eftirfarandi:
- Véla- og gröfuvinna
- Akstur með jarðefni
- Gangstétta- og stígagerð, jarðvinna o.fl.
- Yfirborðsfrágangur
- Garðyrkja
- Hirðing stofnanalóða
- Vetrarþjónusta
- Holræsaþjónusta
Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningur er gerður um fyrrgreinda þjónustuflokka í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar. Aðild að samningnum veitir ekki tryggingu fyrir viðskiptum. Kaupin fara eftir því hvaða verkefni eru í vinnslu á hverjum tíma.
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl 2024, kl. 14:30 á skrifstofu Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1.
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign fyrir kl. 15:00 mánudaginn 22. apríl 2024.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.