Ríkiskaup, fyrir hönd, Fjarðabyggðar kt. 4706982099, óskar eftir tilboðum í verkið Ofanflóðavarnir Norðfirði, Nes- og Bakkagil.
Um er að ræða almennt útboð sbr. 34. gr. laga um opinber innkaup
Verkið felst í því að byggja snjóflóðavarnarmannvirki ofan byggðar í Neskaupstað undir Nes- og Bakkagili á grundvelli meðfylgjandi útboðsgagna.
Um er að ræða gerð þvergarðs og tveggja raða af keilum (hér eftir kallað neðri keiluröð og efri keiluröð) og annarra mannvirkja sem eru hluti af verkinu, s.s. vega, stíga, slóða og vatnsrása fyrir ofanvatn/vatnaveitingar.
Um rafrænt útboð er að ræða og skal öllum tilboðum og fylgigögnum skilað í gegnum rafrænt útboðskerfi Ríkiskaupa, Mercell TendSign https://tendsign.is.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem lýst er í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs.
Útboðsgögn afhent: | 20.03.2024 kl. 11:00 |
Skilafrestur | 17.04.2024 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 17.04.2024 kl. 13:00 |
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.