Home Fréttir Í fréttum 16.04.2024 Efnisvinnsla á Norðursvæði 2024, útboð A

16.04.2024 Efnisvinnsla á Norðursvæði 2024, útboð A

108
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út efnisvinnslu  í 2 námum. Syðri-Langamýri og Djúpadalsá,  Um er að ræða 16.000 m3 malarslitlagsefni í báðum námunum og um 9.000 m3 af efni til í bundið slitlag og burðarlag, auk hálkuvarnarsands,  í Djúpadalsnámu.

<>

Verki skal að fullu lokið 20. september 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 15.  mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.