Home Fréttir Í fréttum Tveggja milljarða baðlón byggt í Laugar­ási í Bláskógabyggð

Tveggja milljarða baðlón byggt í Laugar­ási í Bláskógabyggð

126
0
Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar og Hjalti Gylfason einn af eigendum Mannverks, sem tóku fyrstu skóflustunguna af nýja baðlóninu í Laugarási en þau eru hér ásamt forsvarsmönnum verkefnisins. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Framkvæmdir eru nú hafnar við nýtt baðlón fyrir ferðamenn í Laugarási í Bláskógabyggð en hópur fjárfesta kemur að verkefninu, sem hefur verið í undirbúningi síðustu tíu ár.

<>

Það kom í hlut Ástu Stefánsdóttir, sveitarstjóra Bláskógabyggðar og Hjalta Gylfasonar, sem er í forsvari fyrir verkefnið að taka fyrstu skóflustunguna af Árböðunum um miðjan dag í gær, en Byggingafélagið Mannverk mun sjá um framkvæmdirnar og hönnunarstýringu verksins.

Nýja baðlónið, sem verður glæsilegt í alla staði verður rétt við Iðubrú í Laugarási og skammt frá dýragarðinum í Slakka fyrir þá sem þekkja til.

Félgarnir Hjalti (t.h.) og Halldór Eiríksson hjá T.ark, sem eru mjög spenntir fyrir nýja verkefninu í Laugarási.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Þetta er baðlónaverkefni, hérna ætlum við að baða bæði Íslendinga og útlendinga og hér verða gufuböð og allt sem fylgir slíkum stöðum,” segir Hjalti.

„Þetta er náttúrulega dásamlegur staður því við erum í óskaplega góðu skjóli með ána hérna fyrir neðan þannig að þetta verður óskaplega mikil vin til að koma og baða sig í,” segir Halldór Eiríksson arkitekt hjá T.ark, sem hannaði lónið.

Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, sem fagnar byggingu baðlónsins.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Nóg af heitu vatni er á svæðinu þannig að það verður aldrei vandamál.

„Þetta verður til að njóta heita vatnsins eins og við kunnum kannski allra þjóða best Íslendingar,” bætir Hjalti við.

Og oddviti Bláskógabyggðar fagnar baðlóni í Laugarási, sem á að verða tilbúið í maí á næsta ári.

„Mér líst bara mjög vel á þetta, þetta er bara spennandi verkefni, sem er búið að vera að þróa með aðilunum í nokkur ár og gaman að sjá þetta rætast og ég veit að þetta verður vel að verki staðið og þetta verður ákveðin segull fyrir uppsveitirnar og Bláskógabyggð,” segir Helgi Kjartansson, oddviti.

Baðlónið verður glæsilegt í alla staði en það mun kosta um 2 milljarða króna að koma því upp.
AÐSEND

Og þá velta eflaust margir því fyrir sér hvað kostar eitt svona baðlón og hvað er reiknað með mörgum ferðamönnum ofan í það á hverju ári?

„Framkvæmdakostnaður er áætlaður í kringum tveir milljarðar og áætlanir gera ráð fyrir að þetta verði á bilinu 150 til 200 þúsund gestir, sem koma til okkar þegar lónið er komið í fullan rekstur,” segir Hjalti.

Heimild: Visir.is