Vegagerðin býður hér með út hjólfarafyllingar, afréttingar og lagfæringar á öxlum með flotbiki (Micro surfacing) á vegum á Vestursvæði og Norðursvæði árið 2024.
Helstu magntölur eru:
- Hjólfarafylling með flotbiki Vestursvæði 33.420 m2
- Hjólfarafylling með flotbiki Norðursvæði 53.460 m2
- Samtals 86.880 m2
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu https://tendsign.is/ fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2024.
Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 4. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.